Búin að vera án karlsins míns í 14 daga og 11 eftir! tíminn líður stundum of hægt hehe

En hann skemmtir sér víst vel með kengúrunum og stóru páfagaukunum sem eru víst alltaf að reyna stela matnum hans. eins og það sé eitthvað slæmt ! væri nú alveg til að prufa gefa stórum páfagauk að smakka matinn minn

Er samt búin að hafa nóg fyrir stafni, við Bergdís, Maggi og Inga Rós skruppum í grill í sumarbústaðinn hjá Heiðu og Sæma. Inga Rós var leiðsögumaður og Bergdís og tja spurning um að vera ekkert að ráða þær aftur hehehe..fórum í klst aukabíltúr. Ekkert smá fyndið samt þegar uppgötvaðist að við hefðum keyrt of langt og ekki bara það heldur vorum við eiginlega komin að bústaðnum vitleysu megin við þegar við snérum við. En hefðum reyndar þurft að vera á bíl sem væri ágætlega hár og fjórhjóladrifin til að geta farið yfir eina á en ef það hefði verið hægt hefðum við pretty much verið komin að bústaðnum !

Litla Guðný Birna söng síðan fyrir okkur while she söng sjálfa sig í svefn hehe algjört krútt !
Tveim dögum seinna var svo farið með Maríu og Erni upp í sumó til Aldísar og Garðars. Þar voru einnig Rósey og Reynir, Nanna og litlinn hann Sjonni töffari. Við mættum með látum á staðinn of course hehe reyndar með gat á hljóðkútnum.... Fengum dýrindis humar hjá þeim skötuhjúum mmmm hvað hann var góður.
Hef síðan hitt Hörpu og Söru rúslínu þar sem þær eru í bænum í júlí, ekkert smá gaman að hafa þær í bænum, alltaf gaman að hitta þær mæðgur

Búin að fara vestur í ammæli þar sem var mikið dansað enda skemmtileg hljómsveit þar

Síðan var stelpugrill hjá Maríu sætu ...Örn sá reyndar um grillið hehe, hann slapp víst ekkert í burtu frá því greyjið. Það var intresting.
Annars hlakka ég bara til ágústs núna, þá kemur Kiddi minn ástralíurfari, úglendingarnir mínir og ég verð föðursystir lítils grallara